Samráðsferli sett af stað

10.9.2003

Óskar Bergsson skrifar

Samvinnunefnd miðhálendis hefur samþykkt að setja af stað samráðsferli vegna óska Landsvirkjunar um breytt svæðisskipulag miðhálendis vegna Norðlingaölduveitu og vegna óska Hrunamannahrepps og Fannborgar um háendismiðstöð í Kerlingafjöllum. Einnig mun nefndin kanna möguleika á því að jarðhitavirkjun við Hágöngur verði staðfest í svæðisskipulaginu.

Deilt um úrskurðinn

Óhætt er að segja að stífla við Norðlingaöldu hafi verið ein umdeildasta framkvæmd á hálendi Íslands, a.m.k. fram að þessu. Lónhæð 581 var staðfest með fyrirvara inná svæðiskipulagi miðhálendis 10. apríl 1999. Unnið var umhverfismat fyrir lónhæð 578 og 575 í maí 2002 sem Skipulagsstofnun samþykkti fyrir sitt leyti. Þrátt fyrir að öllum þessum formsatriðum hafi verið fullnægt var það niðurstaða setts umhverfisráðherra, Jóns Kristjánssonar, að uppistöðulón við Norðlingaöldu hefði ekki áhrif innan friðlands Þjórsárvera og var það útfært bæði með flutningi á stíflustæði við Norðlingaöldu og öðrum uppistöðulónum utan friðlandsins. Skýringarmynd með úrskurðinum sýndi Norðlingaöldulón í 566 metrum. Ágreiningur um málið í dag snýst um túlkun á úrskurði Jóns Kristjánssonar. Skeiða- og Gnúpverjar túlka úrskurðinn sem lón í 566 m.y.s. og Landsvirkjun og Ásahreppur túlka úrskurðinn útúr friðlandinu. Þar stendur hnífurinn í kúnni.
Þegar skipulag miðhálendis var unnið á sínum tíma þá var það eins og gefur að skilja,
barn síns tíma. Mikið er um nákvæmar útfærslur einstakra mannvirkja sem í eðli sínu er ekki hluverk svæðisskipulaga heldur fyrst og fremst aðal- og deiliskipulaga. Á þetta mun nú reyna.

Hlutverk nefndarinnar
Það eru uppi ýmsar skoðanir hvert sé hlutverk samvinnunefndar miðhálendis í þeirri deilu sem uppi er. Sumir túlka lögin þannig að samþykkt nefndarinnar sé rétthærri samþykktum sveitastjórna þar sem umrætt svæði er innan skipulagsmarka miðhálendisins. Samþykktir nefndarinnar með staðfestingu ráðherra sé endanleg niðurstaða og sveitarfélög verði að beygja sig undir það. Aðrir túlka lögin á þann hátt að samvinnunefndin sé fyrst og fremst nefnd sem á að gæta þess að samræmi sé á milli aðalskipulagstillagna sveitarfélaga og svæðisskipulags miðhálendis. Á þetta hefur ekki reynt fram að þessu. Þær skipulagsbreytingar s.s. við Kárahnjúka sem gerðar hafa verið fram að þessu hafa verið unnar í nánu samráði við heimamenn og framkvæmdaaðila. Samvinnunefndin mun halda því verklagi áfram og það samráðsferli sem nú er hafið verður notað til þess að reyna að ná ásættanlegri niðurstöðu við Norðlingaöldu um leið og erindi annara hagsmunaaðila fá eðlilega málsmeðferð.


Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands | Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | Sími 561 5175 | halendi@halendi.is