Auglýst breyting vegna rannsóknaborana í Skútustaðahreppi

30.7.2009

Fyrirhuguð orkuvinnsla jarðvarma í Skútustaðahreppi er innan núverandi náttúruverndarsvæðis svæðisskipulags miðhálendis, landslagsheildar sem nefnd er Ódáðahraun og Austurfjöll og utan mannvirkjabelta.

Um er að ræða breytingar á tveimur svæðum, annars vegar á 45 ha svæði nyrst á Kröflusvæðinu og hinsvegar á tveimur skikum sem eru hvor um sig um 4 ha syðst í Gjástykki. Fyrirvari er um útfærslu orkuvinnslusvæðis í Gjástykku í samræmi við samkomulag sveitarfélaganna sem standa að svæðisskipulagi jarðvarma í Þingeyjarsýslum verður ekki farið í orkuvinnslu í Gjástykki ef fæst næg orka frá Bjarnarflagi, Kröflu og Þeystareykjum. Um er að ræða rannsóknaboranir sem falla undir lög um mat á umverfisáhrifum nr. 106/2000. Áhrif  fyrirhugaðrar orkuvinnslu hefur verið metin í heild í svæðisskipulagi háhitasvæða í Þingeyjarsýslum, þar með talin orkuvinnslusvæði innan marka hálendis í Kröflu og Gjástykki í Skútustaðahreppi. Í umhverfisskýrslu vegna fyrirhugarðar orkuvinnlsu er gert ráð fyrir lagmarks umsvifum og mannvirkjagerð innan skipulagssvæðis miðhálendis.


Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands | Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | Sími 561 5175 | halendi@halendi.is