
Norðlingaölduveita í 568 m.y.s eða í 566 m.y.s?
26.8.2003
Landsvirkjun hefur óskað eftir því við samvinnunefnd miðhálendis að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á svæðisskipulagi miðhálendis þannig að gefa megi út framkvæmdaleyfi á grundvelli svæðisskipulags. Með breytingar á svæðisskipulagi miðhálendis er farið skv. 13.gr.a í skipulags- og byggingarlögum. Áður er samvinnunefnd samþykkir breytingatillögu ber nefndinni að leita umsagnar hlutaðeigandi sveitarfélaga. Í tilfelli Norðlingaölduveitu eru það Ásahreppur að austan, en vestan Þjórsár er það Skeiða- og Gnúpverjahreppur. Hreppsnefnd Skeiða-og Gnúpverjahrepps hefur hafnað tillögu Landsvirkjunar um lónhæð í 568 metrum en meirihluti hreppsnefndar samþykkti hinsvegar lónhæð í 566 metrum eins og kynnt var í tillögu setts umhverfisráherra..
Í Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015 er gert ráð fyrir Norðlingaölduveitu með lónhæð 581 m.y.s. með fyirvara um áhrif á gróðurlendi veranna. Lónstæðið er auðkennt sem fyrirhugað orkuvinnslusvæði blönduð landnotkun, orkuvinnsla í bland við náttúruvernd.
Tillaga Landsvirkjunar er í samræmi við úrskurð Jóns Kristjánssonar setts umhverfisráðherra frá 30 janúar s.l. þar sem gert er ráð fyrir að lónið fari út úr friðlandi Þjórsárvera.
Í tillögu Landsvirkjunar er gert ráð fyrir að stífla Þjórsá við Norðlingaölduveitu og við það myndast um 7,1 km2 lón sem nefnt hefur verið Norðlingaöldulón og er rekstrarvatnsborð þess í hæð 568 m y.s. Mögulegt verður að aka yfir stífluna og því opnast leið fyrir ferðamenn yfir Þjórsá. Lagður verður uppbyggður vegur frá núverandi Sprengisandsleið að mannvirkjum við Norðlingaöldulón.
Áður var gert ráð fyrir að vatni úr Þjórsá yrði veitt í göngum og skurðum úr Norðlingaöldulóni yfir í Sauðafellslón um 13 km langa leið. Nú er gert ráð fyrir að vatni úr Þjórsá verði veitt í göngum og skurðum um 7 km langa leið yfir í lón sem nefnt hefur verið Illugaverslón. Lónið er í farvegi Kvíslaveitu í Illugaveri og er allt að 2 km2 með rekstrarvatnsborð í hæð 590 m y.s. Í Illugaveri sameinast því Norðlingaölduveita núverandi Kvíslaveitu en vatnið úr veitunum rennur, um núverandi farveg Kvíslaveitu, í Sauðafellslón norðan við Sauðafell.
Nú er gert ráð fyrir að byggt verði setlón með veitu sunnan við Þjórsárjökul. Lónið hefur verið nefnt Vesturkvíslalón. Vatnsborð er breytilegt en meðalvatnsborð þess að sumri er áætlað um 612 m y.s. og er stærð lónsins þá 3,4 km2. Vestan við Vesturkvíslalón myndast annað lón (Arnarfellslón) sem er um 0,2 km2. Lónin eru mynduð með einni stíflu í farvegi kvíslanna. Vatni er veitt úr lónunum um skurði yfir í Þjórsárlón sem er hluti af Kvíslaveitu.
Breytingar hafa verið gerðar á Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015, m.a. vegna Búðarhálsvirkjunar og vegna virkjanaframkvæmda við Kárahnjúka. En í öllum tilfellum hafa breytingar verið gerðar með fullu samþykki viðkomandi sveitarfélaga.
FBE 24.ágúst 03
Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands | Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | Sími 561 5175 | halendi@halendi.is