Samþykkt breyting á Svæðisskipulagi Miðhálendis 2015, Skútustaðahreppi

7.1.2010

Guðrún María Valgeirsdóttir sveitarstjóri ósk Skútustaðahrepps og kynnti stöðu skipulagsmála í sveitarfélaginu.
Umræður voru um tillöguna og þær athugasemdir sem fram komu á auglýsingartíma.

Auglýst tillaga var samþykkt samhljóða með bókun.  
“Samvinnunefnd Miðhálendis samþykkir breytingu á Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015 er tekur til landssvæðis á norðurhluta Kröflusvæðis og suðurhluta Gjástykkis samkvæmt auglýsingu í samræmi við gr. 13 a í skipulags- og byggingarlögum.Samvinnunefndin samþykkti á fundi í Mývatnssveit. 12 – 13 júní 2008 að auglýsa breytingar á svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands sem tekur til tveggja landssvæða, annarsvegar norðurhluta Kröflusvæðis og hinsvegar suðurhluta Gjástykkis til þess að heimila rannsóknarboranir á umræddum svæðum.Nefndinni hafa borist athugasemdir og ályktanir sem varða auglýsinguna. Nefndarmenn hafa kynnt sér efni ályktana og jafnframt þær efnislegu athugasemdir sem nefndinni bárust vegna auglýstrar breytinga. Nefndin telur framkomnar athugasemdir vegna auglýsingarinnar ekki gefa tilefni til þess að falla frá fyrirhuguðum breytingum. Nefndin telur að skipulagsbreytingin hafi lítil áhrif á verndunarsvæði Gjástykkis þar sem breytingin tekur mið af svæðisskipulagi háhitasvæða sem unnið var í nánu samstarfi við hagsmunaaðila og hefur verið staðfest af Umhverfisráðherra.Svæðin sem um ræðir eru innan Skútustaðahrepps, á mörkum skipulagssvæða Miðhálendis og svæðisskipulags háhitasvæða, en markalína svæðisskipulags miðhálendis var á sínum tíma ákveðin sem tímabundin ráðstöfun, á meðan aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaga lágu ekki fyrir. 
Áheyrnarfulltrúar Umhverfisstofnunar og Landverndar lögðu fram bókun.
“Fulltrúi Umhverfisstofnunar og fulltrúi Landverndar og annarra frjálsra félagasamtaka telja miður að orkuvinnslusvæði við Víti og Leirhnjúk hafi verið stækkað. Eins og ítrekað hefur komið fram mæla ofangreindir aðilar gegn breytingu á Svæðisskipulagi Miðhálendis í því skyni að leyfa borun rannsóknarhola í Gjástykki, vegna sérstöðu verndargildis svæðisins. Bent er sérstaklega á að ætíð hafi komið fram að einungis yrði farið í orkuvinnslu í Gjástykki ef önnur háhitasvæði gefi ekki nægilega orku. Breyting svæðisskipulagsins sé því ótímabær.”


Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands | Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | Sími 561 5175 | halendi@halendi.is