
Samvinnunefnd miðhálendis lögð niður
5.1.2011
Nefndin hefur ítrekað tekið fram í umsögnum sínum um frumvarp til nýrra laga, að skipulagsvald á miðhálendi Íslands er tekið af sveitarfélögunum í landinu og fært til ríkisins. Nefndin hefur óskað eftir rökstuðningi löggjafans á þessum breytingum en ekki fengið.
Samkvæmt nýju lögunum er starfssvið nefndarinnar flutt til Skipulagsstofnunnar, en árið 2000 var nefndin færð frá stofnuninni vegna þess að það þótti ekki samræmast lögum að Skipulagsstofnun væri umsagnaraðili um eigin gerðir. Áform eru uppi um að ný landsskipulagsstefna verði tilbúin árið 2012, en þar sem vinnan er ekki hafin má búast við því að það geti tafist. Í ljósi þess að ósamræmi er í afstöðu ríkisins um hlutverk Skipulagsstofnunnar og skipulagsvalds á miðhálendinu, skort á rökstuðningi um hvers vegna ríkið tekur til sín skipulagsvaldið og að landskipulagsstefna liggur ekki fyrir telur samvinnunefndin að eðlilegra hefði verið að skipulagsvaldið á miðhálendi Íslands hefði verið fært viðkomandi sveitarstjórnum í stað þess að Skipulagsstofnun taki valdið til sín. Með því að Skipulagstofnun sem er eftirlitsstofnun um skipulagsmál taki málaflokkinn að sér, skapast sú hætta að tómarúm verði í skipulagsákvörðunum miðhálendisins þar til ný landskipulagsstefna um skipulagsmál á miðhálendis tekur gildi.
Áður höfðu Einar E Einarsson fulltrúi nefndarinnar frá Sambandi sveitarfélaga á norðurlandi vestra og Snorri H Jóhannesson Sambandi sveitarfélaga á vesturlandi lagt fram eftirfarandi bókun: „Við undirritaðir mótmælum harðlega þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að framselja skipulagsvald Samvinnunefndar miðhálendis á skipulagssvæði miðhálendisins til Skipulagsstofnunnar frá 1. janúar 2011 þar til samþykkt hefur verið ný landsskipulagsáætlun samkvæmt lögum nr. 123/2010.
Samvinnunefnd miðhálendisins hefur verið skipuð fulltrúum sveitarfélaga og ríkisvalds ásamt fulltrúum ýmissa hagsmuna hópa. Skipulagsstofnun er ríkisstofnun sem er ætlað það hlutverk að leiðbeina og samræma skipulagsmál í landinu og vera bæði stjórnvöldum, sveitarfélögum og öðrum ráðgefandi í skipulagsmálum. Því til viðbótar gegnir stofnunin mikilvægu hlutverki í staðfestingarferli allra skipulagsmála og eru í þeim okkar æðsta stofnun. Okkur finnst því óeðlilegt að stofnunin geti nú tekið yfir vald sveitarfélaga og annarra við t.d. umsagnagerð einstakra framkvæmda á miðhálendi Íslands. Sveitarfélögin hafa ekki á nokkurn hátt framselt vald sitt yfir þessum svæðum til Skipulagsstofnunar sem eftir breytinguna verður þá báðum megin við borðið í öllum málum sem tengjast miðhálendi Íslands. Teljum við þetta bæði ólöglegt og siðlaust.“
Bókun nefndarinnar hefur verið komið á framfæri við fjölmiðla og verið send til Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands | Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | Sími 561 5175 | halendi@halendi.is