Svæðið sunnan Hofsjökuls
4.10.2004
Jafnframt samþykkti samvinnunefndin að breytingar á Svæðisskipulagi Miðhálendis 2015 skyldi ná til jarðvarmavirkjunar á orkuvinnslusvæði við Hágöngur í Sveðjuhrauni í samræmi við óskir Ásahrepps og samráðsnefndar um Holtamannaafrétt sbr. bréf dags. 5. sept. 2003.
Í samræmi við óskir Hrunamannahrepps um hálendismiðstöð í Kerlingafjöllum er gert ráð fyrir að þjónustustig Kerlingafjalla breytist frá skálasvæði í flokk hálendismiðstöðva.
Samráð hefur verið við viðkomandi sveitarstjórnir, framkvæmdaaðila og ríkisstofnanir og tillögur verið færðar inn á kort. Á næstu vikum er gert ráð fyrir að tillagan verði kynnt á opnum kynningarfundi.
Tímaáætlun/málsmeðferð skv. 13.gr.a (sjá tímatafla)
Uppdráttur /hér má sjá tillögu samvinnunefndar og greinargerð.
Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands | Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | Sími 561 5175 | halendi@halendi.is