Samvinnunefnd miðhálendisins
Með gildistöku nýrra skipulagslaga 1. janúar 2011 hefur samvinnunefnd miðhálendis verið lögð niður og Skipulagsstofnun tekið við hlutverki hennar.
Samvinnunefnd miðhálendisins er skipuð af umhverfisráðherra til fjögurra ára í senn. Í nefndinni eiga sæti 12 fulltrúar, einn tilnefndur úr hverju kjördæmi, einn af félagasamtökum um útivist, einn af félagsmálaráðherra og tveir án tilnefningar og skal annar vera formaður og hinn koma úr kjördæmi sem liggur að miðhálendinu en úr sveitarfélagi sem ekki liggur að því. Auk þess sitja í nefndinni fjórir áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt sem ráðherra skipar.
Samvinnunefnd miðhálendis annast gerð svæðisskipulags miðhálendisins, fjallar um breytingar á því og fer með endurskoðun þess í samræmi við lög. Einnig gætir samvinnunefndin þess að samræmi sé innbyrðis með aðalskipulagstillögum einstakra sveitarfélaga á svæðinu og að samræmi sé milli þeirra og svæðiskipulags miðhálendisins.