Starfsreglur
1. gr.
Samvinnunefnd miðhálendisins
Nefndin heitir samvinnunefnd miðhálendisins. Hún er skipuð af umhverfisráðherra til fjögurra ára í senn að afloknum reglulegum sveitarstjórnarkosningum. Í nefndinni eiga sæti 12 fulltrúar, einn tilnefndur úr hverju kjördæmi, einn af félagasamtökum um útivist, einn af félagsmálaráðherra og tveir án tilnefningar og skal annar vera formaður og hinn koma úr kjördæmi sem liggur að miðhálendinu en úr sveitarfélagi sem ekki liggur að því. Auk þess sitja í nefndinni fjórir áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt sem ráðherra skipar. Varamenn aðila skulu skipaðir á sama hátt. Fulltrúar kjördæma sem liggja að miðhálendinu skulu tilnefndir af sveitarfélögum kjördæmisins sem eiga land að miðhálendinu. Fjórðungssamband Vestfjarða tilnefnir fulltrúa Vestfjarðakjördæmis, Reykjavíkurborg fulltrúa Reykjavíkurkjördæmis og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum tilnefna saman fulltrúa Reykjaneskjördæmis.
2. gr.
Hlutverk
Samvinnunefnd miðhálendis annast gerð svæðisskipulags miðhálendisins, fjallar um breytingar á því og fer með endurskoðun þess í samræmi við lög. Einnig gætir samvinnunefndin þess að samræmi sé innbyrðis með aðalskipulagstillögum einstakra sveitarfélaga á svæðinu og að samræmi sé milli þeirra og svæðiskipulags miðhálendisins. Nefndin leitar eftir tillögum hlutaðeigandi sveitarfélaga við mótun að tillögu að svæðisskipulagi. Nefndin veitir umsagnir um tillögur og hugmyndir sem snerta skipulag og landnotkun á miðhálendi Íslands og getur ályktað um tillögur að einstökum framkvæmdum innan svæðisskipulags miðhálendis. Verði ágreiningur um hversu víðtækt hlutverk nefndarinnar er, þá sker umhverfisráðherra úr að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar.
3. gr.
Fundir
Halda skal fundi í samvinnunefnd miðhálendisins að lágmarki tvisvar á ári, eða oftar ef nefndin telur þörf á. Formaður boðar til funda með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara og ákveður fundarstað. Fundur er lögmætur ef helmingur nefndarmanna er viðstaddur. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. Nefndin kýs sér ritara og vararitara. Skal formaður og ritari undirrita fundargerð í fundarlok eða á næsta fundi þar á eftir. Sá fundarmaður sem er ósamþykkur ákvörðun meirihlutans, á rétt á að fá sérálit sitt bókað. Fundargerðir skal senda aðal- og varamönnum samvinnunefndarinnar, Skipulagsstofnun og umhverfisráðuneyti.
4. gr.
Verklag
Nefndin getur ákveðið nánar hverju sinni um meðferð einstakra mála. Nefndin getur ráðið sér starfsmenn til aðstoðar enda rúmist kostnaður vegna starfa þeirra innan fjárlagaheimilda nefndarinnar.
5. gr.
Kostnaður
Kostnaður af starfsemi nefndarinnar skal greiðast af ríkissjóði skv. fjárlögum hverju sinni.
6. gr.
Breytingar á svæðisskipulagi miðhálendis
Um málsmeðferð við endurskoðun eða breytingar á svæðisskipulagi miðhálendis Íslands 2015 fer skv. 13. gr. a. og 14. gr. a. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
7. gr.
Gildistaka
Reglur þessar sem settar eru skv. 5. mgr. 12. gr. a. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 sbr. lög nr. 58/1999 öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 15. nóvember 2000
F. h. r.