Leiðbeiningar um skilgreiningu landnotkunar í aðalskipulagi á miðhálendinu

5.8.2003 | 13.56
Í aðalskipulagi þeirra sveitarfélaga sem ná inn á miðhálendið þarf að útfæra þá stefnu sem fyrir liggur í staðfestu Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015. Í svæðisskipulaginu er landnotkun skilgreind með nokkuð öðrum hætti en almennt gerist í aðal- og svæðisskipulagi og gert er ráð fyrir í skipulagsreglugerð. Því var talin þörf á að setja fram leiðbeiningar um útfærslu landnotkunarákvarðana svæðisskipulagsins yfir í aðalskipulag. Eftirfarandi leiðbeiningar hafa verið teknar saman af Skipulagsstofnun og samþykktar af samvinnunefnd miðhálendis 13. mars 2001 með breytingu samþykktri 24. júlí 2002 varðandi skilgreiningu skálasvæða og fjallaselja.

Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands | Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | Sími 561 5175 | halendi@halendi.is